Dalir - hólar - handverk
| Dalir - hólar - handverk er sýningarverkefni í Dölum, við Breiðafjörð
og á Ströndum sem stuðlar að samstarfi milli heimafólks og aðkominna um
handverk og listir. Náttúra og menning svæðisins er uppspretta
verkanna, og er skólahús gamla landbúnaðarskólans í Ólafsdal og
umhverfi hans útgangspunktur sýningarinnar. Skólinn var á mörkum þeirra
þriggja sýslna sem sýningin spannar og naut stuðnings sveitanna í kring
á öndvegisdögum sínum. Vegna þessa var ákveðið að nýta húsið sem
þungamiðju sýningarinnar og tengja þaðan í lykilstaði í
nágrannasveitarfélögum. Kveikja sýningarinnar er löngun til að taka þátt í mannlífi svæðisins, varpa ljósi á menningarverðmæti, efna til samstarfs við heimafólk og hvetja gesti til könnunar á umhverfi og menningu á Vesturlandi og á Vestfjörðum. Sýningin fer þannig fram á 4 stöðum: í húsi gamla Landbúnaðarskólans í Ólafsdal, á Sauðfjársetrinu í Sævangi við Steingrímsfjörð, í Byggðasafni Dalamanna að Laugum í Sælingsdal og í Bátasafni Breiðafjarðar, Reykhólum. Sýningin leiðir gesti um svæðið með því að staðsetja verk sýningarinnar á fjórum stöðum og prenta leiðakort - sem jafnframt er sýningarskrá. Höfundar verka: Hafsteinn Aðalsteinsson og Aðalsteinn Valdimarsson Guðjón Kristinsson & Rúnar Karlsson Guðjón Ketilsson Hannes Lárusson Hildur Bjarnadóttir Hlynur Helgason Sólveig Aðalsteinsdóttir Unnar Þór Þóra Sigurðardóttir Sýningin er opin 9. - 30. ágúst 2009 kl. 14-18 alla daga. Menningarráð Vesturlands og Menningarráð Vestfjarða styrkja verkefnið. Nýpurhyrna er aðili að verkefninu. |
Dalir - hólar - handverk is an exhibition project taking place in the west of Iceland, in Dalir, by Breiðafjörður bay and in Strandir. Its purpose is to establish co-operation between the local people and visiting artists in dialogue on handicraft and art. The natural and cultural specificity of the area is the source material for the work. The old building of the former Agricultural College in Ólafsdalur and its surroundings is the central location for the exhibition. The college was on the borders of the three shires that the exhibition addresses and was, while it operated, funded by them. This is the reason this particular building has been chosen as the center of the project, connecting key places in the neighboring areas. The inspiration for the project is an urge to partake in the culture of the area, to shed light on objects of cultural value, to engage in discourse with the local population and to encourage guests to study the environment and culture of the provinces of Vesturland and Vestfirðir. The venues for the exhibition are 4: The former Agricultural College in Ólafsdalur, The Sheep Museum at Sævangur in Steingrímsfjörður, The Folk Museum at Laugar in Sælingsdalur, and Breiðafjörður Ship Museum at Reykhólar. The exhibition invites visitors to travel around the area through the strategical positioning of the work in four different locations, and a map of the area as a functiong as a guidebook and a catalogue for the exhibition. The exhibition is on from August 9 till 30 and is open every day from 2 - 6 pm. |