Höfundar
Hafsteinn Aðalsteinsson & Aðalsteinn Valdimarsson
Guðjón Kristinsson & Rúnar Karlsson
Guðjón Ketilsson
Hannes Lárusson
Hildur Bjarnadóttir
Hlynur Helgason
Sólveig Aðalsteinsdóttir
Unnar Örn
Þóra Sigurðardóttir
- Hafsteinn og Aðalsteinn hafa sérhæft sig í smíði og endurgerð trébáta. Þeir eru helsti drifkraftur Bátasafns Breiðafjarðar sem að stofni til er safn Aðalsteins Aðalsteinssonar frá Hvallátrum.
Guðjón Kristinsson & Rúnar Karlsson
- Guðjón Kristinsson og Rúnar Karlsson eru hleðslumeistarar með margháttaða reynslu af vinnu við torf-og steinhleðslu. Handbragð þeirra er eftirsótt og hafa þeir verið fengnir til að hlaða garða af margvíslegum toga, jafnt innanlands sem utan.
Guðjón Ketilsson
- Í verkum sínum vinnur Guðjón Ketilsson gjarnan með hliðstæður mannslíkamans í ýmsu formi, fjarveru hans og/eða nærveru. Togstreita mill einfaldra tví- og þrívíðra ímynda og hugmynda, samband hluta (t.d. verkfæra) við líkamann, byggingarfræðileg rými, eru viðfangsefni sem hafa verið honum mjög hugleikin undanfarin ár.
Hannes Lárusson
- Hannes Lárusson hefur fengist við listtengda iðju á ólíkum sviðum undanfarna áratugi. Síðustu einkasýninguna hélt hann í Kanada haustið 2008 undir nafninu Based on Dream.
Hildur Bjarnadóttir
- Textíll, uppruni hans og samhengi er helsta viðfangsefni Hildar í myndlistinni. Hún hefur sýnt víða bæði hérlendis og erlendis. Hildur hefur samhliða myndlistinni kennt í Myndlistaskólanum í Reykjavík og Listaháskóla Íslands.
Hlynur Helgason
- Hlynur hefur undanfarin ár einbett sér að myndlistarverkum sem taka mið af staðháttum á þeim stað sem hann sýnir á. Ljósmyndir og kvikmyndir eru þungamiðjan í list hans, en þó oft í tengslum við annan efnivið. Hann hefur sýnt víða á Íslandi og í Evrópu.
Sólveig Aðalsteinsdóttir
- Umfjöllunarefni verka Sólveigar hafa verið umhverfi og taktur hins hversdagslega lifs, samhengi myndlistar, efnisins og daglegra athafna. Sólveig hefur tekið þátt í fjölmörgum samsýningum og haldið einkasýningar hérlendis og erlendis, ásamt því að kenna við Myndlistaskólann í Reykjavík.
Unnar Örn
- Unnar Örn skoðar þær hefðir og venjur sem mótast hafa í skrásetningu fólks á umhverfi sínu. Hann þræðir stofnarnir og söfn og notar innviði þeirra í verk sem draga dám af uppröðun og flokkun raunveruleikans. Unnar Örn nam myndlist í Malmö í Svíþjóð.
Þóra Sigurðardóttir
- Þóra Sigurðardóttir lauk námi við Myndlista-og handíðaskóla Íslands og stundaði framhaldsnám í Danmörku. Hún hefur unnið við myndlist, listkennslu og verkefnastjórnun á sviði lista og menningar og er annar stofnenda Nýpurhyrnu; viðburðafléttu á sviði lista og menningar að Nýp á Skarðsströnd. Þóra hefur sýnt verk sín hérlendis og erlendis og eru verk hennar í eigu opinberra safna og einkasafna.