Atriði sýningarinnar
Bátasafn Breiðafjarðar : Hafsteinn Aðalsteinsson og Aðalsteinn Valdimarsson
-
Fjórir menn tóku sig til að smíða súðbyrðing með breiðfirsku lagi, Aðalsteinn Valdimarsson, Eggert Björnsson, Hafliði Aðalsteinsson og Hjalti Hafþórsson. Báturinn var smíðaður um helgar, með hléum þó, frá hausti 2006 fram á sumar 2007. Ásdís Thoroddsen og Hálfdán
Theódórsson kvikmynduðu smíðina. Sýnd eru brot af þeim upptökum; jafnframt er verkstæði Bátasafnsins opið gestum.
- Guðjón Kristinsson hleðslumeistari stendur fyrir grjóthleðslu sem unnið er af Rúnari Kristinssynir og alþjóðlegum hóp sjálfboðaliða frá Veraldarvinum. Verkið er endurgerð hluta traðarinnar sem áður lá heim að Ólafsdal. Við verkið er notuð tækni/handverk sem tíðkast hefur um aldir, verkþekking sem varðveist hefur mann fram af manni.
- Teikningabræðingur byggður á ýmsum gömlum upp drátt um brautryðj enda í iðnsögu fyrri alda, t.d. Torfa Bjarnasonar og Leonardo da Vinci. Eins konar skissuþreifingar um samband forms og fúnksjónar, lögunar og notkunarmöguleika. Í sama herbergi er verk þar sem málningarlög fyrri tíma gerð sýnileg og myndverkið Vél. Handsnúið leikfang. Notkunarmöguleikar verkfærisins eru faldir í lögun þess og samsetningu.
Jæja, Sævangi : Guðjón Ketilsson
Ólafsdalsskerinn og fleiri hlutir, Laugum og Ólafsdal : Hannes Sigurðsson
- Hlutirnir eru unnir í tré og járn og eru allir með sama uppruna- og skyldleikavottorðið. Þeir hafa orðið til eins og af sjálfu sér, virðast þegar hafa verið til þegar þeir voru gerðir.
- Spunavélin í Ólafsdal hefur setið ónotuð í rúmlega 50 ár. Verkið felst í að koma henni í starshæft form og spinna í henni þráð. Þráðinn litaði ég úr njóla úr Dölunum og prjónaði úr því föðurland. Á sýningunni er afrakstur verksins og skráning á ferli þess.
- Yfirsýn rekur útjaðar Ólafsdalslands með myndum teknum allt í kring um bæinn og eru 10 gráður á milli tökustaða. Á hverjum stað er tekin mynd að bænum og önnur frá honum.
Útsýni, Laugum, Reykhólum, Sævangi : Hlynur Helgason
- Frá hlaðinu í Ólafsdal voru teknar myndir í stefnu til Lauga, Reykhóla og Sævangs. Þessar myndum frá Ólafsdal eru síðan felldar inn í sýningarnar á þessum stöðum og sýna hvernig útsýnið frá Ólafsdal er til þeirra.
- Gamall uppdráttur skólapilts af skipulagi túna í Ólafsdal vakti athygli mína á túnum bænda. Tún liggja eins og landslagð bíður best upp á, skurðirnir teikna línur sem ráðast af legu lands og farvegi vatns. Ég gekk upp í hlíðar fjalla, horfði yfir túnin og teiknaði fjölbreytt form og hlutföll túnskákanna.
- Verkið er myndagáta eða nokkurskonar minnisleikhús tengt skala og mælieiningum. Teikningin er fengin er af póstkorti póstsendu 1925 og er sennilega eftir Tryggva Magnússon.
- Tröppur og stigar eru efniviður teikninga og ljósmynda Þóru Sigurðardóttur; taktur og hljómfall staðar er fólginn í hversdagslegri endurtekningu og daglegum erli. Stigar hússins í Ólafsdal sýna hagleik smiðsins sem smíðaði en eru jafnframt slitin og máð af ótal skrefum þeirra sem þar áttu heima.
No TrackBacks
TrackBack URL: http://vefir.multimedia.is/hlynur/cgi/mt/mt-tb.cgi/301
Leave a comment